Actions to strengthen competition in selling of real estate
Félag fasteignasala, FF, gerði sátt við Samkeppniseftirlitið vegna brota á 12. gr., sbr. 10. gr., samkeppnislaga. Með sáttinni viðurkennir FF ólögmætt samráð innan félagsins og fellst á að greiða 6 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þeirra. Samhliða sekt fellst FF einnig á að gera frekari breytingar á starfsemi sinni til bóta fyrir samkeppni á vettvangi fasteignasölu.